Blogsvæði Genotyping :)
Flott fyrirtæki
Reglur Björgvins
Vinnufélagar
30.11.2006 15:22:40 / týpurnar

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ CALLI !!!

Hvernig ætli það sé að vera búin að lifa í hálfa öld ?? Við getum spurt Calla að því :haha:

En að öllu gríni sleppt, til hamingju með daginn, vonum að þú hafir það gott í útlandinu með Einari, það er algjört lágmark að hann treati þig með allavega einum gráum.

Hérna er allt með kyrrum kjörum, vægast sagt kyrrum kjörum, það er ekki rassgat að gera :|

Magga er hreinlega búin að hreinsa ALLT út úr requestinu í mirosattelitunum og snipparnir eru að klárast. En til allrar hamingju er eitthvað af raðgreiningu, Möggu til ómældrar ánægju :$

Á föstudagin í næstu viku er svo hið árlega jólahlaðborð Íslenskrar erfðagreiningar, það verður að þessu sinni í Gullhömrum á Grafarholti. Sögur segja að maturinn þar sé MJÖG góður þannig að það er eins gott að hann standi undir væntingum.

Kveð að sinni.

p.s. allir eiga svo að vera duglegir að slúðra í mig eftir jólahlaðborðið svo að ég geti laumað að ykkur skemmtisögum.

Rut skrifaði
Til hamingju með afmælið Calli!
Malla skrifaði
Elsku Calli minn, Innilega til hamingju með daginn um daginn :o) Vona að þú hafir það sem allra best. Stórt knús, Malla.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.